Heildartala yfir síðuflettingar

Sýnir færslur með efnisorðinu Prjón. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Prjón. Sýna allar færslur

fimmtudagur, 7. maí 2026

Kusk 2


 Önnur Kusk peysa datt af prjónunum hjá mér. Garnið keypti ég á Garngleðinni. 
 Garngleðin er haldin í Haukahúsinu í Hafnarfirði fyrstu helgina í mars og er í göngufæri frá heimili mínu sem mér finnst alveg frábært. 
Ljósa garnið er frá Dóttur Dyeworks og það gráa frá Hex Hex. Svo setti ég bleikan afgang í stroff á hálsmáli og ermum. Ég prjónaði þessa með sömu breytingum og ég gerði á uppskriftinni á fyrri Kuskpeysunni. Ermarnar hafði ég líka í 3/4 sídd.
Uppskriftin er frá Eddu Lilju.

sunnudagur, 1. mars 2026

Kusk

Mig langaði alltaf að prjóna peysuna Kusk, bæði vegna sniðsins og eins til að nota þessar stöku hespur mínar í eitthvað annað en sjöl. Ég átti tvær hespur sem voru mjög líkar og þær mynda dökku, breiðari rendurnar. Þær voru hvor frá sínum litaranum, en samt meira ljóst í annarri, og svo bleika. Hún kláraðist næstum alveg, ég var komin með plan B ef hún skyldi ekki duga, en það slapp.

 

Fyrst prjónaði ég peysuna alveg eftir uppskriftinni, með uppgefinni prjónastærð sem eru númer 4 fyrir meðal prjónafestu nema ég jók út með reglulegu millibili í hliðunum á bolnum, því það fer betur mínum vexti. Við mátun fannst mér berustykkið alltof stórt og hálsmálið of vítt og ná of langt niður á bak. Þá varð ég fegin að hafa ekki klippt þræðina á milli litaskipta eins og ráðlagt er í uppskriftinni því ég rakti hana alla upp. Fitjaði aftur upp á hálsmálinu á prjóna nr. 3 í stað 3,5, og prjónaði fast. Svo gerði ég upphækkun að aftan og prjónaði svo berustykkið á prjóna 3,5 vel niður fyrir síðustu útaukningarumferð. Eftir það notaði ég prjóna nr. 4 og smellpassar peysan núna. Á myndinni hér að ofan sést upphækkunin. Hálsmálið varð miklu meira að mínu skapi svona þrengra og með upphækkun. Ermarnar hafði ég í 3/4 sídd.


Uppskriftin er frá Eddu Lilju Guðmundsdóttur.

föstudagur, 23. janúar 2026

Prjónaðir pottaleppar

Þessa pottaleppa fann ég á síðu garnstudio.com. Ég prjónaði aðra eftir uppskrift á síðunni þeirra fyrir nokkrum árum og það eru með bestu pottaleppum sem ég á. Þeir eru prjónaðir í hring og lagðir tvöfaldir saman og saumaðir á endunum og verða þykkir og góðir. Ég notaði Muskat frá Gallery spuna og prjóna nr. 3.

 

sunnudagur, 28. desember 2025

Eyrnabönd


Ein ömmustelpan, tíu ára, afhenti mér þetta garn og bað mig um að prjóna eyrnaband á sig. Ég fitjað upp tíu lykkjur á prjóna nr. 10 og lét vaða, prjónaði bara þangað til það mátaðist passlegt á hana. Eina vesenið sem ég lenti í var að ganga frá endum og að sauma það saman því garnið er svo loðið að það er erfitt að draga það í gegn. Ráðið við því er að klippa pelshárin af aðalþræðinum og sauma svo. Þetta gerði ég við seinna hárbandið, þetta bleika, sem sú yngri, 8 ára, bað mig að prjóna á sig. Sú yngri er reyndar fyrirsæta á báðum myndum því hin var ekki viðlátin þegar ég myndaði.
 

Garnið heitir Sirdar Alpine og fæst í A4. Prjónastærðin sem er gefin upp er nr. 10 og uppskrift er engin.

þriðjudagur, 23. desember 2025

(Jóla)músagangur


 Ég sá pakkningu með uppskrift og garni í þessar jólalegu mýs og fannst þær svo sætar að ég varð að prjóna þær. Auðvitað hafði ég barnabörnin í huga en ég hélt samt eftir þremur fyrir mig en leyfði þeim öllum að velja sér tvær hverju.



Uppskriftin sem fylgdi var íslensk þýðing úr norsku, en ég fór fljótlega yfir í frummálið því það voru slæmar villur í þýðingunni. Að öðru leyti gekk allt vel, ég notaði ullartróð, hvítt eða rautt eftir því sem við átti. Eyrun eru stífuð með sykurvatni en þau vildu samt vísa of mikið niður og fyrir augun svo ég tók nokkur saumspor í þau til að þau tylldu betur upprétt.



Sex ára ömmustrákurinn lék sér með mýsnar á ýmsan máta þegar hann fékk þær í hendur.

Uppskriftin er frá garnstudio.com og garnið heitir Fabel.

miðvikudagur, 26. nóvember 2025

Jólahúfur




 Kennaraparið í fjölskyldunni uppgötvaði fyrir jólin í fyrra að eiginlega vantaði þau jólahúfur til að passa inn í stemminguna sem ríkir í skólanum svona rétt fyrir jólin. Ég lofaði að bæta úr því fyrir næstu jól og þetta er afraksturinn.

Uppskriftin er frá Ömmu Loppu. Garnið er frá Katia og heitir Craft Lover. Prjónarnir voru nr. 4. Ég prjónaði stærstu og næststærstu stærðina.

miðvikudagur, 22. október 2025

Vorflétta



Þetta er Vorflétta eftir Auði Björt. Hún kemur í tveimur stærðum og valdi ég þá minni. Í hana átti að duga ein 100 gr. hespa, 400 metrar. Það fór aðeins meira hjá mér, um 106 grömm, en það gerði ekkert til því ég var með 150 gr. hespu frá Handprjóni, en man ekki hvað hún hét. En ég er mjög ánægð með þetta smásjal og gaman að prjóna það.

 

Það er eitt af aðalsmerkjum Auðar Bjartar að sjölin og teppin líta eins út beggja megin, það er hvorki ranga né rétta.

Þegar þetta er skrifað er bleiki dagurinn, og ég skartaði því í fyrsta sinn í dag þegar ég útréttaði um borg og bý.

mánudagur, 4. ágúst 2025

Cantaloupe sjal


Ég átti afgang af grænu Drops Air sem ég ákvað að nota í þetta litla sjal þegar mig vantaði eitthvað til að prjóna. Uppskriftin er frá Garnstudio og heitir Cantaloupe Shawl. Þetta garn var afgangur frá peysuprjóni, og ég lét ömmustelpuna sem fékk þá peysu líka fá sjalið.


 


Og af því að mér þótti svo gott að hafa það um hálsinn, þá keypti ég í annað sjal fyrir sjálfa mig. Passlega lítið til að hafa þegar ekki er of kalt en samt ekki nógu hlýtt.




þriðjudagur, 27. maí 2025

Vettlingar


 Einhvern tíma á útmánuðum prjónaði ég vettlinga á barnabörnin fjögur. Ég sá nýtt garn frá Drops í Gallery Spuna og langaði að prufa það. Finnst það koma skemmtilega út í svona vettlingum. Ég notaði uppskriftina góðu sem er frí á heimasíðu Storksins, Randalíus. Garnið heitir Fiesta.

föstudagur, 4. apríl 2025

Aðventusjal/Adventsjal



 Ég hef áður prjónað þessa uppskrift. Mér finnst gaman að prjóna hana og stærðin og lagið á sjalinu er akkúrat eins og ég vil hafa það. Það heitir Aðventusjal, en þegar komið er svona nálægt páskum finnst mér hálf skrítið að vera að sýna sjal með þessu nafni. En það var prjónað fyrir þó nokkru síðan, ég hef það mér til afsökunar.  Hér eru allar upplýsingar um hvar uppskriftina er að finna. Ég man ekkert hvaðan garnið er, átti það í handlitaða garnsafninu mínu, en prjónarnir voru nr. 4.



miðvikudagur, 19. mars 2025

Northeasterly úr útsaumsgarni


Í gegnum tíðina hefur safnast upp hjá mér mikið af útsaumsgarni. Ég var búin að koma því fyrir uppi á háalofti og það pirraði mig að vita af því þarna og engin plön um að nota það.
 

Síðasta sumar vantaði mig eitthvað á prjónana til að hafa með í húsbílaferð og sótti garnið upp á háaloft. Valdi mér aftur uppskriftina Northeasterly sem ég hef prjónað áður, en hún hentar svo vel þegar garnið er allavega og mismikið af hverjum lit.


Ég notaði einungis ullargarn, geymdi allt annað. Svona leit bakhliðin út hjá mér, en uppskriftin gerir ráð fyrir að gegnið sé frá endum jafnóðum með því að vefa þá í prjónið jafnóðum, en það er ekki almennilegur frágangur í mínum huga. Hins vegar er þráðurinn í einni dokku ekki langur, ég tala nú ekki um ef búið er að taka af henni, þannig að endarnir urðu mjög margir sem ganga þurfti frá.


Ég saumaði niður hvern einasta enda. Þetta lítur ekki vel út í byrjun, en þá er bara að hefjast handa og annaðhvort hlusta eða horfa á eitthvað skemmtilegt og svo er þetta bara allt í einu búið.


Uppskriftin heitir sem sagt Northeasterly og fæst á Ravelry.

fimmtudagur, 13. febrúar 2025

Vettlingar og sokkar




Fyrir utan kragann sem 5 ára leikskólastrákinn minn vantaði og ég sýndi í síðustu færslu, þurfti hann líka sokka og vettlinga. Amman hefur greinilega sofið á verðinum í prjónaskapnum og því var ekki um annað að ræða en að sitja dálítið við og prjóna. Vettlingarnir eru eftir uppskrift frá Storkinum sem heitir Randalíus og er frí á heimasíðu hans. Garnið er Drops merino extra fine.
 


Sokkarnir eru prjónaðir úr Fabel frá Drops eftir uppskriftinni Pitter Patter frá garnstudio.com.  Ég hef oft prjónað þessa uppskrift áður og hef sokkabolinn aðeins víðari en uppskriftin segir.



Allt sem ég prjóna á barnabörnin merki ég eins og hér að ofan, enda týnist fátt ef nokkuð.

þriðjudagur, 28. janúar 2025

Býkúpa


Ömmustrákinn vantaði nýjan kraga til að halda á sér hita í leikskólanum. Þessi heitir Býkúpa og er úr bókinni Prjónað af ást eftir Lene Holme Samsøe. Svo prjónaði ég húfu í stíl. Uppskriftin gefur upp húfu bæði með eyrnaskjólum og án.
Garnið er Drops merino extra fine (kemur engum á óvart), prjónarnir nr. 3 og 4 og stærðin passar á 6-8 ára.


 

þriðjudagur, 31. desember 2024

Chunky Twist eyrnabönd


 Fyrir fimm árum prjónaði ég eyrnabönd fyrir okkur stelpurnar í fjölskyldunni, sex stykki. Í haust bað ein ömmustelpan mig um að prjóna aftur hvítt eyrnaband fyrir sig, því trúlega hefur það gamla verið orðið of lítið. Það er hér að ofan. Uppskriftin heitir Chunky Twist og fæst á Ravelry.



Þegar ég svo prjónaði peysurnar á þær í haust átti ég nógan afgang í eyrnabönd í stíl við peysurnar. Heppilegt að það er gert ráð fyrir Drops Air í eyrnaböndin, sama garni og ég var með í peysunum.

miðvikudagur, 18. desember 2024

Strákavesti


Ég prjónaði vesti á ömmustrákinn eina til að vera í yfir hátíðirnar. Hann hefur gaman af því að vera fínn og herralegur.


Ég studdist við uppskriftina Smáravesti frá Ömmu Loppu að mestu leyti, en breytti stroffunum þannig að ég hafði eina og eina í stað þess að hafa tvær sléttar og tvær brugðnar. Með því móti gat ég haft fallega úrtöku í vaffinu í stað þess að leggja á misvíxl og sauma niður eins og uppskriftin gerir ráð fyrir.


 Ég fitjaði upp á stærð 5-6 ára, en drengurinn er fimm ára síðan í haust, og hafði síddina nær 6-8 ára stærðinni, því hann er frekar langur. 

Garnið er Dale Lille Lerke, blanda af ull og bómull, og prjónastærðin var nr. 4.

sunnudagur, 24. nóvember 2024

Skólapeysur


Það var alveg kominn tími á að prjóna nýjar peysur á litla flokkinn minn. Nú eru börnin 5, 7 og 9 ára og ég þurfti að róa aðeins á önnur mið en venjulega eftir uppskriftum út af elstu stelpunum. Fyrr á árinu keypti ég bókina Skólapeysur sem Prjónafjelagið gaf út. Stærðirnar í henni eru fyrir 6-14 ára.


Þar valdi ég uppskriftina Selás til að prjóna eftir á stelpurnar. Ég var hins vegar með fínna garn en gefið er upp þannig í stað þess að fara eftir lykkjufjölda í stærð 10 ára fitjaði ég upp fyrir stærð 12 ára á þær elstu en hélt sídd á ermum og bol fyrir 10 ára. Það sama gerði ég hjá þeirri sjö ára, fitjaði upp fyrir 10 ára en hélt sídd fyrir 8 ára. Notaði uppgefna prjónastærð, no.6.


Þetta heppnaðist, allt passaði vel á þær. Hafði hálsmálið líka lægra og víðara en í uppskriftinni.


Mér hefur aldrei fundist gaman að prjóna upphækkanir með stuttum umferðum en þessi uppskrift bæði byrjar og endar á upphækkunum. Hins vegar fann ég íslenskt vídeó með aðferð sem gekk svona svakalega vel hjá mér að nota að upphækkanirnar urðu það skemmtilegasta í prjóninu.


Fimm ára pilturinn fékk peysu eftir uppskrift úr bókinni Prjónað af ást eftir Lene Holme Samsøe. Uppskriftin heitir Uppáhaldspeysa Sveins, stærð 6 ára.


Og hér eru allir komnir í peysurnar…..


Ég notaði Drops Air í stelpupeysurnar og prjóna no.6 og Drops Merino Extrafine í strákapeysuna. Öll börnin völdu sjálf lit fyrir sig.


 

laugardagur, 26. október 2024

Tvær Erlur


Seint í sumar prjónaði ég tvö pör af vettlingunum eftir uppskriftinni “Erla” í bókinni Íslenskir vettlingar.
Ég hugsa að pörin af Erlu sem ég hef gert séu að verða hátt á annan tuginn. Flest þeirra hef ég prjónað úr Flora frá Drops, en eitthvað úr sokkagarni frá Vatnsnesi. 
Í þessa notaði ég Flora og prjóna nr. 2.


 

mánudagur, 30. september 2024

Dúkkukjólar


Einhvern tíma í sumar prjónaði ég þessa kjóla á dúkkurnar. Ég var ekki með sérstakar uppskriftir af þeim, heldur notaði ég uppskriftirnar af dúkkupeysum og kjól sem ég skrifaði um í þessari færslu, sem grunn til að miða við. Þar fæ ég lykkjufjöldann og skiptingu í ermar og bol, þar sem byrjað er að prjóna ofan frá. Svo er bara að hafa stuttar eða langar ermar, útvítt eða beint o.s.frv. Mjög auðvelt að spinna þetta upp jafnóðum. 
Allir kjólarnir eru hnepptir að aftan.


 

fimmtudagur, 5. september 2024

Vettlingar fyrir veturinn


Haustið nálgast og kominn tími til að prjóna skólavettlinga á barnabörnin fjögur. Ég hef undanfarið prjónað eftir uppskrift úr Leikskólafötum, en sú uppskrift nær aðeins upp í sex ára aldur. Börnin eru á aldrinum 5-9 ára og þurfti ég að finna aðra uppskrift. Hana fann ég á síðu Storksins. Hún er frí og heitir Randalíus. Mjög góð að fara eftir og rétt í stærðum.


Í vettlingana hér að ofan notaði ég Smart garn úr Rúmfatalagernum, endurnýjaði kynni mín við það, hef ekki prjónað úr því síðan synir mínir voru litlir fyrir nokkrum áratugum. Garnið í ljósu vettlingana er Merino Blend DK, keypt á sama stað. Prjónarnir voru nr. 4. Að sjálfsögðu saumaði ég merkimiða inn í hvern einasta vettling.