Heildartala yfir síðuflettingar
fimmtudagur, 7. maí 2026
Kusk 2
sunnudagur, 1. mars 2026
Kusk
Mig langaði alltaf að prjóna peysuna Kusk, bæði vegna sniðsins og eins til að nota þessar stöku hespur mínar í eitthvað annað en sjöl. Ég átti tvær hespur sem voru mjög líkar og þær mynda dökku, breiðari rendurnar. Þær voru hvor frá sínum litaranum, en samt meira ljóst í annarri, og svo bleika. Hún kláraðist næstum alveg, ég var komin með plan B ef hún skyldi ekki duga, en það slapp.
Fyrst prjónaði ég peysuna alveg eftir uppskriftinni, með uppgefinni prjónastærð sem eru númer 4 fyrir meðal prjónafestu nema ég jók út með reglulegu millibili í hliðunum á bolnum, því það fer betur mínum vexti. Við mátun fannst mér berustykkið alltof stórt og hálsmálið of vítt og ná of langt niður á bak. Þá varð ég fegin að hafa ekki klippt þræðina á milli litaskipta eins og ráðlagt er í uppskriftinni því ég rakti hana alla upp. Fitjaði aftur upp á hálsmálinu á prjóna nr. 3 í stað 3,5, og prjónaði fast. Svo gerði ég upphækkun að aftan og prjónaði svo berustykkið á prjóna 3,5 vel niður fyrir síðustu útaukningarumferð. Eftir það notaði ég prjóna nr. 4 og smellpassar peysan núna. Á myndinni hér að ofan sést upphækkunin. Hálsmálið varð miklu meira að mínu skapi svona þrengra og með upphækkun. Ermarnar hafði ég í 3/4 sídd.
þriðjudagur, 19. ágúst 2025
Cosmo
Ein ömmustelpan mín, hún Auður Katla, er mikill aðdáandi Dandy’s World karakteranna. En hún er líka mjög skapandi stelpa og býr allt mögulegt til sem hún lærir á Youtube, og saumar á saumavél sem hún á sjálf ásamt bróður sínum, vél sem hin amma þeirra gaf þeim í vor.
Í sumar gerði hún þennan haus sem tilheyrir Cosmo úr Dandy’s World, en er hér karakter í Roblox leiknum. Hún gerði hann alveg sjálf úr pappa sem var ekki auðvelt og var með alveg sér vinnuborð í bílskúr foreldra sinna. En hana vantaði hettubolinn sem persónan klæðist og bað mig um hjálp.
Svo vel vill til að langamma hennar í móðurætt skildi eftir sig dálítið af ónotuðum efnum sem voru sett í mína vörslu og þar fann ég efni í peysuna. Þetta var samvinnuverkefni okkar Auðar, ég tók upp snið, hún klippti út, en ég saumaði allt. Ætlaði fyrst að láta hana sauma eitthvað, en sá að tíminn leyfði það ekki fyrir utan að ég notaði overlock vélina að mestu, sem er ekki fyrir börn. Svo klúðraði ég saman vettlingum í restina sem voru bara fyrir útlitið.
Afi hjálpaði líka við að setja tjullið fyrir augun, erfitt að líma niður tjull.
Ég gat notað sniðið af Hildas Hoodie hettupeysunni frá Ida Victoria, minnstu kvenstærðina, enda er daman orðin 10 ára. Ég breytti hettunni aðeins að framan til að geta sett bönd. Þetta heppnaðist sem sagt og allir glaðir. Svo hef ég heyrt að hún noti peysuna líka dags daglega.
sunnudagur, 24. nóvember 2024
Skólapeysur
laugardagur, 14. október 2023
Bangsaföt
sunnudagur, 7. maí 2023
Karin hverdagscardigan
Ég saumaði nokkrar peysur á mig í fyrra eftir sniði frá Ida Victoria sem heitir Karin hverdagscardigan. Ég fór varla úr þeim í fyrrasumar. Sniðið gerir ráð fyrir þremur síddum, og hafði ég þær allar síðar. Reyndar er ég búin að stytta ermarnar á þremur þeirra í 3/4 sídd af því að ég ýti alltaf ermum upp og í staðinn fyrir að berjast við að halda þeim uppi á handleggnum klippti ég bara af þeim (og faldaði, að sjálfsögðu).
Ég átti afgang af gráa efninu og þegar ég fór að mæla sá ég að hann myndi duga í miðsíddina af peysunni. Hún er bæði styttri, nær niður á mið læri, og með styttri ermar, mjög þægileg sídd. Efnið dugði nákvæmlega í hana.
sunnudagur, 23. október 2022
Aðalvík nr.5
Edit: Fyrri peysan fannst🙂
Þetta er ekki sama rauða Aðalvíkin og ég sýni hér neðar í blogginu, heldur ný peysa. Ömmustelpan sem hin var prjónuð á var ekki búin að eiga peysuna nema í tæpan sólarhring þegar hún hvarf af snaga í skólanum hennar. Síðan er liðinn einn og hálfur mánuður, og hefur ekkert til peysunnar spurst.
Amman tók uppskriftina aftur fram og gerði nýja peysu fyrir 7 ára skólastelpuna sína þegar þrjár vikur voru liðnar frá hvarfinu. Fyrri peysan var merkt með nafninu hennar, saumuðu á taumiða innan á stroffið.
En þetta er sem sagt Aðalvík, stærð 6-8 ára, prjónuð úr Drops merino extra fine frá Gallery Spuna á prjóna nr. 4.
föstudagur, 9. september 2022
Aðalvík nr. 3 og 4
Þá er ég búin að prjóna eftir uppskriftinni Aðalvík frá Ömmu Loppu á öll barnabörnin fjögur.
Systurnar sem fengu þessar völdu sjálfar litina sem þær vildu hafa á peysunum. Þessi rauða er í stærð fyrir 6-8 ára, en sjálf er daman 7 ára.
Sú yngri valdi sér bleikt og hennar peysa er í stærð fyrir fimm ára, enda er hún fimm ára.
Garnið er eins og áður Drops merino extra fine, keypt í Gallery Spuna. Prjónað á prjóna nr. 4 og 3,5.
þriðjudagur, 16. ágúst 2022
Aðalvík nr. 2
Fyrr í sumar prjónaði ég peysuna Aðalvík á yngsta barnabarnið og er færsla um það neðar á síðunni.
Þessa gerði ég svo á systur hans sem er nýorðin 7 ára. Hún valdi litinn sjálf, vínrauðan, og er hann töluvert dekkri en myndirnar sýna, kom svona skær út í dagsbirtunni. Er mjög fínn á henni.
Ég prjónaði stærð á 6-8 ára, hún er fallega síð á henni og passar vel.
Garnið er Drops merino extra fine, keypt i Gallery Spuna í Hamraborg. Prjónastærðin er 3,5 og 4, og uppskriftin að sjálfsögðu frá Ömmu Loppu.
föstudagur, 29. júlí 2022
Hilda hoodie
Efnið, sem er French terry, keypti ég í Litlu músinni á Akranesi, en stroffefnið í Föndru. Sniðið pantaði ég frá hinni norsku Ida Victoria.
mánudagur, 25. júlí 2022
Aðalvík með húfu
Prjónaði duggarapeysu á litla manninn minn, sem verður 3 ára eftir rúman mánuð. Hafði stærðina á 4 ára og passar hún vel á hann. Prjónuð ofanfrá, sem mér finnst langbest þegar ég prjóna á börn. Pilturinn valdi sjálfur litinn sem er heldur grænblárri en á myndunum.
Svona merki ég allt sem ég prjóna á barnabörnin, enda týnist ekkert.
Skellti líka í húfu, en hún fylgdi ekki uppskriftinni. Studdist við uppskriftina Nordigjønå-lue sem er í Klompelompe vinterbarn, en notaði einn munsturbekkinn úr peysuuppskriftinni.
Húfan er á 3-6 ára og prjónuð á prjóna 3 og 3,5, en peysan á prjóna 3,5 og 4. Garnið er Drops Merino Extra Fine (hvað annað?), keypt í Gallery Spuna í Hamraborg og uppskriftin, sem heitir Aðalvík, er frá Ömmu Loppu.
sunnudagur, 10. júlí 2022
Karin hverdagscardigan
Fjórða peysan sem ég sauma eftir sniðinu sem ég keypti hjá Ida Victoria. Nota hinar svo mikið að mér þótti sjálfsagt að bæta við einni bleikri. Yngsta ömmustelpan sem er mjög bleik og hefur mikinn fataáhuga sá mig fara í hana í gær og sagði strax: flott peysa, amma, viltu vera í henni í afmælinu mínu (sem er reyndar nýbúið), já, en þá bara í Ylfu afmæli…. Tek sko alveg mark á þessari dömu, reyni oft að vera í bleiku þegar von er á að hitta hana.
Efnið er kallað vöfflujersey vegna vefnaðarins og er bómull með 5% teygju, en það teygist frekar mikið. Ég lét því saumaráðgjafann í Husqvarnavélinni velja rétta sporið til að falda með teygjuefni og hann valdi þetta spor. Efnið pantaði ég að utan.
miðvikudagur, 1. júní 2022
Síðar peysur
Ég tók mig til um daginn og saumaði mér þrjár síðar peysur til að nota í sumar. Ekki það að ég eigi ekki nóg af prjónuðum peysum, mig langaði bara í þynnri og mýkri peysur. Ég keypti snið sem ég hef lengi ætlað að eignast og saumaði prufupeysu úr efni sem ég keypti í töluverðu magni, hræódýrt, í Álnavörubúðinni í Hveragerði þegar hún var að hætta með efni.
Sniðið smellpassaði, en það eina sem ég gat sett út á var að listinn að framan var heldur stuttur og kipraði peysuna aðeins kringum hálsmálið. Ég tók hann af, bætti 5 cm inni í hann og saumaði aftur á, og nú var hann miklu betri. Svo sleppti ég líka vösum sem fylgdu sniðinu, hef ekkert að gera við vasa á flíkum nema utanyfirflíkum eins og úlpum og kápum. Sniðið kemur í þremur síddum, og valdi ég þá síðustu.
Þótt þetta efni hafi verið ódýrt þegar ég keypti það, þá er það alveg þrusugott, og hef ég varla farið úr þessari gráu.
Næst var svo að gera aðra, verð að eiga bláa líka. Efnið í hana keypti ég í Litlu músinni og gerði mér ferð upp á Akranes til að kaupa það, á mjög erfitt með að kaupa efni án þess að koma við það fyrst. En efnin hjá henni eru mjög góð, og hef ég pantað tvisvar síðan og verið mjög ánægð. Þetta bláa er lífrænt bómullarjersey, mjög gott að vera í henni. Nota hana líka mikið.
Svo bætti ég við einni hvítri, passar vel að eiga eina slíka fyrir bjarta sumardaga. Efnið pantaði ég frá Litlu músinni og er það sams konar og bláa efnið.
Peysurnar voru saumaðar svo til eingöngu á overlockvélina, stakk bara axlarsauma og faldaði ermar í Epic vélinni.
Þetta spor úr Epic saumavélinni er mjög fínt til að falda jerseyefni og lokar kantinum að innan. Nennti ekki að taka fram coverlockvélina fyrir svona lítið.
Sniðið pantaði ég frá Ida Victoria í Noregi og tók það ekki nema viku að fá það í hús. Huggulegt að fá svona fallegt kort með 🤍
miðvikudagur, 25. maí 2022
Önnur golftreyja -Tynn Lilly-jakke
Þessi golftreyja er á aðra tæplega sjö ára ömmustelpuna mína, en hin sem er jafngömul fékk eins peysu í fölbleikum lit. Daman valdi sjálf þennan græna lit, fannst nóg komið af bleiku í fataskápnum sínum þegar við mamma hennar stungum upp á bleikum lit, og vildi breyta til. “Öll fötin mín eru bleik, herbergið mitt er bleikt…….”
Það er byrjað á berustykkinu og svo teknar upp lykkjur fyrir hálsmál og til að prjóna niður bolinn og ermarnar. Skemmtilegt að prjóna.
Uppskriftin er úr Klompelompe - Strikkefest. Garnið er Lanett og keypt í Rokku. Prjónarnir voru nr. 2,5 og 3, og í hnappalistana hafði ég þá nr. 2. Stærðin er á 8 ára.
fimmtudagur, 31. mars 2022
Golftreyja - Tynn Lilly-jakke
Ömmustelpu, sem verður sjö ára í sumar, vantaði nýja golftreyju, var vaxin upp úr þeirri sem ég prjónaði á hana þegar hún var fjögurra ára. Sú peysa hefur verið í stanslausri notkun og tekur tæplega fimm ára systirin glöð við henni. En þessi sem ég prjónaði núna er úr bókinni Klompelompe - Strikkefest og heitir Tynn Lilly-jakke. Hún er prjónuð þannig að bekkurinn efst er prjónaður sem lengja, síðan eru teknar upp lykkjur á efri kantinum og hálsmálið prjónað, svo er tekið upp á neðri kantinum og prjónað niður.
Peysan er prjónuð fram og til baka og fannst mér það dálítið puð, en fínt bíla- og sjónvarpsprjón. Ég prjónaði úr Lanett, daman valdi sjálf litinn og uppskriftina. Prjónarnir voru nr. 3 og 2,5, og í hnappalistann notaði ég prjóna nr. 2. Stærðin er á 8 ára.