Heildartala yfir síðuflettingar

Sýnir færslur með efnisorðinu Álfar. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Álfar. Sýna allar færslur

miðvikudagur, 8. apríl 2026

Þrívíddarprentun


Ég átti stórafmæli í byrjun mars. Synir mínir og þeirra fólk komu mér algjörlega á óvart og færðu sjötugri móður sinni þrívíddarprentara í afmælisgjöf. Það datt næstum af mér andlitið og ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að taka þessu. Annar þeirra notar þrívíddarprentara í kennslu og ég vissi að hann var að gera margt sniðugt og ég hef örugglega einhvern tíma sagt í hálfkæringi að svona þyrftum við að eignast einhvern tíma. Ég hélt upp á afmælið 21. mars og hafði mig ekki í að opna kassann fyrr en daginn eftir. En það er skemmst frá því að segja að eftir að ég prentaði hvíta bátinn, sem er eins konar prufustykki fyrir prentara almennt til að bera saman gæði, þá hef ég ekki stoppað. Ég hef prentað alla daga síðan þá nema tvo. Þá daga var ég að búa mér til lítið prentunarherbergi í innigeymslu í húsinu, bar allt út úr því, raðaði svo því sem mátti fara inn aftur, sneri öllu við og setti inn flott vinnuborð fyrir prentarann. Svo verður málað og dúklagt. Ég byrjaði svo til gamans á Barbíhúsgögnum sem komu mjög vel út.


Páskarnir voru á næsta leiti svo ég vatt mér í páskaskrautið. Ég þurfti að kaupa mér töluvert af litarúllum en fékk líka nokkrar að gjöf með prentaranum. Gula skrautið er hvort í sínum eldhúsglugganum.


Smá skraut var hengt upp í glugganum í prentaraherberginu. Ætlaði fyrst að nota glæran tvinna til að hengja upp með en það fór allt í óleysanlega flækju svo ég greip gamalt sláturgarn og setti upp með því, finn kannski eitthvað annað seinna.


Nú á ég tvo ketti og eiginmaðurinn geymslu fyrir batterí. Ég gerði tvö svona kattarandlit í viðbót fyrir tvær ömmustelpur sem langaði svo í þau.


Ég er alltaf veik fyrir svona álfum og þessir prýða eldhúsgluggana tilbúnir í vorverkin. Svo er bara svo margt skemmtilegt sem hægt er að gera eins og þessa litlu “hjartavini” og box fyrir þá eða eitthvað annað, endalausir möguleikar.
Ég mun segja meira frá prentaranum og sýna myndir af honum þegar við erum búin að koma litla prentaraherberginu í betra horf, mála og þess háttar.
Það er orðið þannig hjá mér núna að í staðinn fyrir að spá í hvað ég eigi að hafa í kvöldmatinn þá spyr ég sjálfa mig: Hvað ætti ég að prenta í dag?
 

sunnudagur, 29. mars 2026

Viskastykki og fleira








 Alltaf sest ég við útsaumsvélina öðru hverju og oft verða viskastykki fyrir valinu. Það er mjög þægilegt að sauma í hvítt efni, en mér finnst líka gaman að sauma í köflótt og röndótt og að finna þá munstur og liti sem koma vel út í þeim.


Yngsta ömmustelpan, átta ára, teiknaði mynd þegar hún var í heimsókn og bað mig að búa til púða með myndinni. Það er svo gaman þegar þau biðja mig um svona greiða og ég geri það með gleði. Þetta er mjög auðvelt í framkvæmd í gegnum app í símanum frá Creativate. Maður tekur mynd og sendir í vélina sem saumar myndina. Hún valdi litinn.




Einhvern tíma saumaði ég þessa nálapúða í útsaumsvélinni og gaf elstu stelpunni þann græna í stíl við grænu Husqvarnavélina hennar. Ég hélt þeim bleika sem er í stíl við mína bleiku Husqvarna Epic vél. 
Allt í stíl.